Í þessum áfanga er lögð áhersla á hönnun og smíði rafeindarása til að taka við boðum
og stýra ytri búnaði. Kennd er hönnun og smíði samsettra rafeindarása og veitt innsýn í eðlisfræði íhluta. Smíðaðar eru einingar til að taka við merkjum frá skynjurum og til aflstýringar á orkufrekum tækjum. Farið er í uppröðun og tengingar á tilbúnum iðnaðarreglunareiningum á DIN skinnu og gengið frá kassa með búnaði á DIN skinnu í samræmi við staðla og ákvæði reglugerða. Farið er í
fínlóðningar með yfirborðsásetta íhluti (SMD) og kennd tækni við að skipta út íhlutum með mörgum tengingum. Nemendur skili teikningum á viðurkenndu formi með teiknitáknum í viðurkenndum staðli. Farið er í kynnisferðir í framleiðslufyrirtæki. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og notkun hermiforrita.
VGRT2GA03CR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
prentplötugerð og mikilvægi rýmda og spans í rásum.
helstu verkfærum fyrir rásasmíði.
merkingum og stöðlum yfirborðslóðaðra íhluta (SMD).
teiknitáknum og teiknistöðlum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leggja tölvuteiknaða rafeindarás á prent.
æta eða fræsa prentplötur með ljósfilmu.
lóða SMD íhluti á prent.
aflóða SMD íhluti.
teikna rafeindarásir á viðurkenndu formi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna og teikna rafeindarásir í þar til gerðu teikniforriti.
hanna prentplötu út frá skematískri teikningu.
sannreyna virkni rásarinnar í hermiforriti.
lóða upp rásina með hvort heldur sem er gegnumgangsíhlutum eða yfirborðslóðuðum.
sannreyna virkni rásarinnar með mælitækjum.
Kennsla sé sem mest verkefnastýrð, námsmat sé símat með tvo til þrjá lykilmatsætti og leiðsagnarmat.