Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1510152110.91

    Smíði og hönnun rafeindarása III
    SMÍH3RE05(CR)
    6
    Smíði og hönnun rafeindarása
    Smíði og hönnun rafeindarása
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    CR
    Nemendur þjálfast í öguðum vinnubrögðum og læra um mikilvægi vandaðrar vinnu og vandaðs frágangs. Nemendur fá þjálfun í smíði rafeindabúnaðar sem styður sveinsprófsáfangana FJST og MEKA. Nemendur smíða rafeindatæki samkvæmt forskrift kennara sem síðar fer til mats hjá sveinsprófsnefnd. Einkunn fyrir áfangann er sú sama og fyrir MEKA4RE05CR og STTÆ3RE05CR enda samþættir í sveinsprófi.
    SMÍH3RE05BR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi vandaðrar hönnunar.
    • þáttum sem spila inn í hönnun rása s.s. hitasveiflum, raka, iðustraumum, span og rýmdaráhrifum rása, utanaðkomandi truflunum, truflunum frá búnaði útávið.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vanda frágang rafeindarása með tilliti til hita, raka og utanaðkomandi truflana.
    • meta þörf á hlífum í takt við IP staðal um raka og rykþol.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hanna og smíða rás og vélbúnað sem tekur við stýrimerkjum frá tölvu.
    • teikna rásir á viðurkenndu formi.
    • smíða fjarskiptabúnað til afmarkaðra nota með kassa og utanáliggjandi stillingum.
    Kennsla sé sem mest verkefnastýrð, námsmat sé símat með tvo til þrjá lykilmatsþætti og leiðsagnarmat.