Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1510152340.96

    Starfsþjálfun í rafeindavirkjun - A hluti
    STAÞ1RE20(AR)
    23
    Starfsþjálfun
    Starfsþjálfun rafeindavirkjun
    Samþykkt af skóla
    1
    20
    AR
    Nemendum eru kynntar öryggiskröfur á vinnustað og mikilvægi þeirra. Nemendum skal gerð grein fyrir hættum sem geta verið samfara vinnu við rafmagn. Nemendur öðlast reynslu í viðgerðum og viðhaldi á ýmisskonar rafeindabúnaði og fá þjálfun í góðum frágangi og fagmannlegum vinnubrögðum. Nemendur nái tökum á og skilji virkni þeirra rása og tækja sem þeir vinna við og geti bilanagreint, skipt um íhluti og gert við. Nemendur fá þjálfun í teikningalestri og að rekja signalleiðir og beitingu mælitækja við bilanaleit og stillingu á rafeindabúnaði og þjálfast í notkun helstu handverkfæra þar að lútandi.
    Nemandi skal hafa lokið 2 önnum (60 einingum) í grunndeild rafiðna.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • öryggi á vinnustað og notkun hlífa.
    • mikilvægi góðs frágangs á rafeindabúnaði út frá notkunarsviðum.
    • mikilvægi þols búnaðar gagnvart ytri aðstæðum.
    • teikningum og teiknistöðlum í rafeindateikningum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • bilanagreina og lagfæra rafeinda og rafmagnsbúnað af ýmsu tagi í samvinnu við meistara.
    • gera við einfaldar rafeindarásir og skipta út íhlutum.
    • vinna sjálfstætt og áætla tíma verkefna.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • mæla og bilanagreina rafeindabúnað.
    • gera við og ganga frá rafeindabúnaði.
    • teikna og leiðrétta teikningar eftir þörfum.
    • finna íhluti út frá samanburðartöflum til útskiptingar á biluðum íhlutum.
    • starfa sjálfstætt og vinna með fagfólki.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum meistara í viðkomandi grein.