Lögð er áhersla á að nemendur geti unnið að viðgerð, samsetningu og uppsetningu rafeindabúnaðar og geri sér grein fyrir hvort bilun tengist hugbúnaði eða vélbúnaði. Nemendur sýni leikni í starfi og hæfni í beitingu mælitækja og verkfæra. Nemendur læri sjálfstæð vinnubrögð, mikilvægi góðrar framkomu og geti aðstoðað og unnið með viðskiptavinum.
STÞJ1RE20AR
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
táknum íhluta og lestri rásateikninga.
mikilvægi hristi, raka og rykþols tækjabúnaðar.
tengingu og frágangi ýmisskonar rafeindabúnaðar.
notkun mælitækja við bilanaleit.
tengingu rafeindabúnaðar við stjórn eða jaðarbúnað.
virkni þeirra tækja sem hann vinnur við.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna sjálfstætt og í samvinnu að bilanagreiningu og lagfæringum rafeindabúnaðar og rafeindakerfa.
finna bilanir í rafeindabúnaði og kerfum og gera við á faglegan og ábyrgan hátt.
meta þörf á hýsingu rafeindabúnaðar gagnvart ytri aðstæðum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita rökhugsun við bilanagreiningu.
vinna sjálfstætt á vinnustað og forgangsraða verkþáttum.
leiðbeina viðskiptavinum um val og staðsetningu rafbúnaðar.
veita viðskiptavinum hámarksþjónustu.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum meistara í viðkomandi grein.