Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1510234418.07

    Endurnýjanlegir orkugjafar
    EORK2RK05(AR)
    2
    Endurnýjanlegir orkugjafar
    Endurnýjanlegir orkugjafar
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    AR
    Farið er í umhverfismál, efnis og eiturefni í rafiðnaði og förgun. Áhrif eiturefna á náttúruna og mikilvægi góðrar umgengni þar sem unnið er með rafmagnsefni. Farið í möguleika endurnýjanlegra orkugjafa svo sem vatnsaflsvirkjana, heimarafstöðvar og stýringar fyrir heimarafstöðvar. Kynnt er hvernig álagsreglun er háttað og hvernig heimarafstöð getur tengst dreifikerfinu. Farið er í vindmyllur með áherslu á sjálfstæðar rafstöðvar en stærri stöðvar einnig skoðaðar. Vindálag, afkastageta miðað við vind og framleiðsla. Skoðaðar eru frá 3 fasa AC rafalar og niður í 12V DC. Reglunartækni fyrir vindrafstöðvar er skoðuð. Grundvallarþarfir, straumþol, útsláttaröryggi og afköst. Hvaða möguleikar eru í geymslu rafmagns á DC með rafgeymum. Skoðaðar ýmsar gerðir rafgeyma og eiginleikar þeirra. Ennfremur eru stærri geymar eins og Liþium Ion. Möguleikar sólarorku eru skoðaðir, stærðir á sólarsellum, reglun á rafgeymahleðslu og ýmsir nýtingarmöguleikar. Breytar fyrir DC/AC og AC/DC. Kynning og notkun á varmadælum. Áhersla er á sjálfbærni í orkubúskap og möguleikar þess fyrir frístundahús og dreifbýli.
    RAFM3GA05DR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvaða efni eru notuð við raforkuvirki og tengistöðvar.
    • hvaða mögulega skaða efni í rafiðnaði geta valdið á lífríki náttúrunna.
    • vindmyllum af nokkrum gerðum og afkastageta þeirra.
    • sólarorkusellur, tegundir, möguleg afköst, nýtni og hentugleiki.
    • reglunartækni fyrir AC og DC rafala, afltaka, hleðslustraumar og hraði hleðslu inn á mismunandi gerðir rafgeyma.
    • ýmsum gerðum rafgeyma.
    • straumþoli rafgeyma og afhleðslutíma miðað við ákveðið álag.
    • rennslisvirkjunum, afkastagetu, álagsreglun og tíðni.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meta þörf fyrir orkugjafa á hverjum stað.
    • áætla og reikna þörf fyrir stærð orkugjafa, stærð orkugeymslu, stærð reglunarbúnaðar eftir þörf til lengri tíma litið.
    • meta afkastagetu lækja eða áa og meta virkjanakost út frá rennsli og fallhæð.
    • teikna og leggja upp sjálfbæran orkubúnað í sumarbústað eða áningarstað og teikna kerfið.
    • leggja upp og teikna kerfi fyrir sjálfbæra veðurathuganarstöð, fjarskiptabúnað eða annan þann búnað sem þarf að standa sjálfstæður utan orkudreifikerfis.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja upp og forrita álagsreglunarbúnað fyrir rafala.
    • setja upp rafbúnað fyrir sumarhús, fjallakofa eða sambærilega stöð með sólarsellum eða vindrafal.
    • tengja hleðslustöð, reglunarbúnað, rafgeyma, öryggiskerfi, ljósabúnað og annan búnað sem þarf að vera tengdur við 12V eða 24V sjálfbært orkukerfi.
    Áfanginn byggi á verkefnastýrðu námi. Í símati séu lágmark 5 matsþættir. Lámarkslokaeinkunn er 5.