Efling skapandi hugsunar, hugmyndafræði nýsköpunar, þróun hugmynda
Samþykkt af skóla
1
4
Í áfanganum er fjallað um aðferðir til að efla skapandi hugsun, leikni í þróun hugmynda og hæfni til að koma þeim á framfæri. Fjallað um hugmyndafræði nýsköpunar. Áfanginn er þemaskiptur þar sem unnið er með nýsköpun, stuttmyndagerð, tónlist o.fl. Lögð er áhersla á að skoða margvíslegar útfærsluleiðir þar sem nemendur vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra. Fjallað verður um ýmsar aðferðir við að skrásetja hugmyndir.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
aðferðum og hugtökum í hugmyndavinnu og skrásetningu hugmynda
útfærslumöguleika hugmynda á efni, rými, tækni, aðferða og niðurstöðu
hugmyndafræði nýsköpunar
markvissum leiðum til að halda utan um hugmyndir sínar og úrvinnslu þeirra
þýðingu fjölbreyttrar gagnasöfnunar við þróun hugmynda
eigin persónulegu leiðum við hugmyndavinnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skapa og þróa verk út frá gefnum forsendum
geti unnið ferlið: Hugmynd – Úrvinnsla – Afurð
beita opinni og leitandi hugsun við þróun hugmynda
skýra hugmyndir sínar á munnlegan, skriflegan, leikrænan og myndrænan hátt
halda utanum hugmyndavinnu sína og úrvinnslu í dagbókarformi
beita margvíslegum aðferðum til að virkja ímyndunaraflið, bæði þekktum aðferðum annarra og sínum eigin
koma auga á óvænt samhengi
gera grein fyrir sköpunarverki sínu á munnlegan og skriflegan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þróa hugmyndir sínar á opinn og skapandi hátt
komi auga á tækifæri til nýsköpunar í nærumhverfinu
kynna hugmyndir sínar á fjölbreyttan hátt
beita sjálfstæði, frumkvæði og hugmyndaauðgi í vinnubrögðum við framsetningu eigin hugmynda
vinna hugmyndavinnu í hóp og sýna þar áræðni og bera virðingu fyrir öðrum.