Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1510583812.87

    Inngangur að félags- og náttúruvísindum
    FÉNÁ1IN04
    1
    Félags- og náttúruvísindi
    Inngangur að félags- og náttúruvísindum
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Markmið áfangans er að gefa yfirlit yfir viðfangsefni félags- og náttúruvísinda og hlutverk þeirra sem vísindagreina. Helstu hugtök sem komið er inná í áfanganum eru menning, samfélag, fjölskylda, samskipti, jafnrétti kynnjanna, vinnumarkaður og stjórnmál auk líffræði, jarðfræði, efnafræði og eðllisfræði. Lögð er áhersla á að nemendur fái innsýn inní málefni annars vegar félagsvísinda og hins vegar náttúruvísinda.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum félags- og náttúruvísinda
    • sampili manns og náttúru
    • áhrifum samfélagsins á mótun okkar sem einstaklinga
    • fjölskyldunni og mismunandi sambúðarformum
    • vinnumarkaði og helstu hugtökum stjórnmálafræðinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa og ræða texta um náttúruvísindi
    • nýta margmiðlunarefni, gagnabanka, leitar- og samskiptavefi um náttúruvísindalegt efni á gagnrýnan hátt
    • beita algengustu hugtökum félagsvísinda í umfjöllun um samfélagið á skýran hátt
    • afla sér gagna um álitamál og vinna með heimildir annarra
    • taka þátt í samræðum og færa rök fyrir máli sínu um samfélagsleg málefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja hvernig maðurinn notar hinar ýmsu náttúruvísindagreinar, s.s. líffræði, jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði til að auka skilning sinn á náttúrunni og heiminum
    • geta á gagnrýninn hátt metið gildi upplýsinga um unhverfi, náttúru og tækni
    • tjá sig á einfaldan hátt um safmfélagsleg málefni og eiga jákvæð og uppbyggileg samskipti við aðra og bera virðingu fyrir skoðunum annarra
    • leggja mat á heimildir og upplýsingar á samfélagslegum málefnum
    Verkefnavinna með áherslu á leiðsagnarmat