Í áfanganum er
fjallað um framkvæmdir steinsteyptra húsabygginga og mannvirkja. Byrjað er að gera grein fyrir
afsetningu húsa. Kerfismót kynnt, Reglur og staðlar eru kynntir. Mælingar á byggingastað. Ákvæði
byggingareglugerðar þar sem fjallað er um ferli frá hugmynd að húsi til fullbúins húss.
Kynnt eru hugtök um krafta og álag sem hafa áhrif á mannvirki.
BYGG1HU05AB (?, ath)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
byggingarreglugerð og skipulagslögum
mismunandi mótum
uppsetningu móta
framkvæmdum á vinnustað
hvernig á að færa til hæðakvóta á byggingastað
mun á steypugerðum sem notaðar eru
hvernig grundun, mælingu og byggingu steinsteyptra húsa er háttað
faglegri nálgun við úrvinnslu verkefna
grunnatriðum lengdar- og hæðarmælinga á byggingastað
algengustu mæliaðferðum og mælitækjum
mismunandi tegundum efna, véla og verkfæra
einangrun botnplötu og sökkulveggja
helstu einangrunarefnum sem notuð eru í húsgrunna
þjöppun fyllingarefna og einangrun veggja og plötu
muninum á hefðbundnum steypumótum og flekamótum
smíði hefðbundinna steypumóta fyrir einstaka byggingarhluta
öryggisráðstöfunum við smíði og niðurrif steypumóta
framleiðslu og niðurlögn steinsteypu
samsetningu og hörðnunarferli steinsteypu
algengum útfærslum á undirstöðum úr steini
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meðhöndla verkfæri og tæki
meðhönla efni sem notuð eru
meðhöndla mót miðað við nottkunargildi þeirra
smíða og rífa niður steypumót fyrir byggingar og mannvirki
staðsetja byggingarlínur með hornaslám og mæla lengdir
afsetja hæðir á byggingarstað út frá föstum hæðarpunkti
finna réttan halla á lögnum eða plani
koma fyrir gluggum, hurðum og öðrum íhlutum í steypumót
vinna að verkefnum sjálfstætt og í hóp
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna í samræmi við lög, reglugerðir og staðla
leiðbeina kranastjóra við flutning á efni og tækjum
undirbúa steypumót fyrir niðurlögn steinsteypu
sinna aðhlynningu og eftirmeðhöndlun steinsteypu
smíða og setja upp verkpalla og fallvarnir
aðlaga sig að mismunandi vinnuumhverfi
Mælt er með því að námsmat byggi á skriflegu prófi (u.þ.b. 60%) og minni verkefnum sem nemendur skila til kennara (40%) s.s. skýrslur eftir heimsóknir.