Í þessum áfanga fara nemendur í starfsþjálfun á vinnustað og er nemendinn á einum eða fleiri vinnustöðum í þessari starfsþjálfun. Nemandinn á að vinna við sem fjölbreyttasta verkþætti á vinnustað og skal öðlast þjálfun, leikni og hæfni í að vinna við verkþættina. Eftirfylgni með vinnu nemandans á tilgreindum verkþáttum á að vera með ferilbók sem meistari og nemandi fylla inn í eftir framvindu. Skólinn hefur eftirlit og umsjón með starfsþjálfun nemanda hverju sinni og staðfestir starfsþjálfun nemanda með undirskrift sinni í ferilbók nemanda. Lengd starfsþjálfunar er 18 vikur.
Nám í húsasmíði ásamt vinnustaðanámi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
velja sér námsbraut innan bygginga‐ og mannvirkjagreina á grundvelli þekkingar
takast á við frekara nám innan bygginga‐ og mannvirkjagreina hvort heldur er í skóla eða sem nemi á vinnustað
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa og greina einfaldar teikningar, verklýsingar og önnur verkgögn beita algengustu áhöldum og tækjum innan atvinnugreinarinnar
fara vel með tæki og tól og nýta vel efni sem unnið er með
gæta öryggis síns í og á vinnustað
ganga fagmannlega frá í kennslustofu og á vinnustað fara eftir leiðbeiningum kennara og verkstjóra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sinna störfum og starfsumhverfi innan bygginga‐ og mannvirkjaiðnaðar
kunna skil á ýmsum námsleiðum að loknu námi
nýta algengustu áhöld og tæki innan atvinnugreinarinnar
þekkja skil á helstu efnum sem unnið er með í bygginga‐ og mannvirkjaiðnaði
fylgja öryggisráðstöfunum á vinnustað og mikilvægi heilsuverndar mikilvægi umhverfisverndar í atvinnugreininni
skilja mikilvægi góðra samskipta og samvinnu á vinnustað
sinna borgaralegum réttindum sínum og skyldum
kunna skil á skipulagi íslensks samfélags og vinnumarkaðar
Námsmat er sameiginlegt með kennara skóla og fulltrúa fyrirtækis og skal vera í formi leiðsagnarmats. Einkunn nemanda skal vera þannig háttað að áfangi er staðinn eða ekki staðinn og niðurstöður námsmats fært inn í ferilbók.