Í áfanganum eru unnin verkefni, lík þeim sem tekin eru fyrir í sveinsprófi. Þau krefjast þess að nemendur nýti og samþætti þekkingu og færni sem þeir hafa aflað sér í skóla og á vinnustað á námstímanum. Farið er í upprifjun bóklegra og verklegra þátta úr fyrri áföngum eftir því sem þurfa þykir. Lögð er áhersla á að nemendur þjálfist í
skipulagningu og verkáætlun, framkvæmd, gæðamati, skráningu og rökstuðningi á verkum og verkþáttum. Reynt er að líkja eftir aðstæðum í atvinnulífinu og því hafa nemendur aðgang að öllum fyrirliggjandi gögnum, efni, áhöldum og tækjum meðan á verkefnavinnu stendur.
Nemandi þarf að hafa lokið um 60 einingum af sérnámi brautar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skipulagningu verkefna
upplýsingaöflun
áætlanagerð
byggingarreglugerð og skipulagslögum
öryggisreglum og öryggisbúnaði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna í samræmi við lög, reglugerðir og staðla
vinna eftir séruppdráttum og deilum
vinna sjálfstætt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúa á eigin spýtur verkefni sem honum er fengið
geti unnið verkáætlun og afmörkuð hönnunargögn
geti gert efnis- og tímaáætlun
geti valið heppileg áhöld og tæki fyrir einstök verkefni
geti aflað og nýtt upplýsingar um útfærslur, efni, áhöld og tæki
framkvæma verkefni sjálfstætt í samræmi við áætlanir
fylgi fyrirliggjandi verkáætlun og hönnunargögnum
vinni í samræmi við tímaáætlanir
geti unnið í samræmi við lög, reglugerðir og staðla
taki mið af gæðakröfum og viðurkenndu verklagi
vinni í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað
gera öðrum grein fyrir verkefninu og framkvæmd þess
geti rökstutt val á aðferðum, efnum, áhöldum og tækjum
Verkefni áfangans, símat, sjálfsmat, jafningjamat. Námsmat í áfanganum byggist á leiðsagnar- og símati.