Í áfanganum er kennd smíði staðbyggðra timburhúsa með áherslu á undirstöður, burðar- og milliveggi. Farið er í klæðningu, einangrun, uppsetningu glugga, hurða, stiga og innréttinga auk almenns frágangs.
Meðal þess sem tekið er fyrir er útfærsla einstakra byggingarhluta, efnisval og staðsetning á stoðum og hvernir á að koma fyrir einangrun og rakavörn. Áfanginn er að mestu verklegur þar sem nemendur fá þjálfun í almennum verkþáttum húsasmíða eins og meðferð áhalda og tækja, notkun smíðisfestinga, yfirborðsmeðferð, öryggis- og gæðamálum m.m.
Áfanginn er á námsbraut í húsasmíði og lögð er áhersla á sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfni til að vinna með öðrum í hóp.
GLÚT2HH08, INNK3HH05 og INRE2HH08
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu berandi timburveggja
smíði gólf- og hæðaskila í timburhúsi
uppbyggingu eldvarnarhólfa
stífingu timburhúsa
yfirborðsmeðferð smíðaviðar
mismunandi undirstöðum fyrir timburhús
algengum útfærslum á undirstöðum (úr steini og tré)
festingum gólfvirkis við sökkul- eða súluundirstöður
stífingu og afréttingu gólfbita
stífingum á grindarveggjum, staðsetningu stoða og festingar
algengustu útfærslum á loftræstum timburklæðningum á útveggi
uppsetningu á vindvörn og klæðningagrind og reglur um loftun
frágangi á borðaklæðningum í kringum veggop og á hornum og brúnum
uppsetningu lagnagrindar og afréttingu hennar
gólfklæðningum á gólfbita með tréborðum og gólfplötum
yfirborðsmeðferð timburs
hvernig á að smíða og setja upp verkpalla og fallvarnir
smíði steypumóta fyrir stiga
eiginleikum og notkunarsviði algengra burðar- og klæðningakerfa
mismunandi festingakerfum og afréttingu þeirra
áhöldum og tækjum sem notuð eru við uppsetningu grindar og klæðningar
muninum á hefðbundnum steypumótum og flekamótum
smíði hefðbundinna steypumóta fyrir einstaka byggingarhluta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
smíða gólfvirki og hæðaskil með hliðsjón af kröfum um styrkleika, einangrun og eldvarnir
greina algengar útfærslur á undirstöðum úr steini og tré
greina helstu aðferðir og efni til að verja tré gegn fúa og veðrun
ganga frá hurðum og gluggum í timburhús
velja áhöld og tæki til uppsetningar á grind og klæðningu
klæða og velja heppileg verkfæri með mismunandi innanhússklæðningum á gólf, veggi og loft
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka tréundirstöður í rétta hæð fyrir dregara og stífa af
smíða létta innveggi og berandi útveggi úr tré
smíða létta innveggi og berandi útveggi með hliðsjón af kröfum um styrkleika, einangrun og eldvarnir
smíða þakvirki úr timbri og klæða með algengustu efnum
smíða þakvirki og klæða í samræmi við kröfur um styrkleika, einangrun og eldvarnir
klæða útveggi með liggjandi og standandi timburklæðningu
klæða útveggi með borðaklæðningu í samræmi við kröfur um styrkleika, einangrun og eldvarnir
einangra og klæða gólf og veggi innanhúss
koma einangrun fyrir og ganga frá rakavarnarlagi
setja upp útihurðir og glugga, glerja og ganga frá bæði að utan og innan
stilla af karma og festa með tilheyrandi þéttingum
glerja og ganga frá með tilheyrandi listum, áfellum og gereftum
setja upp innréttingar og tréstiga og ganga frá listum í kverkar m.m.
koma fyrir gluggum, hurðum og öðrum íhlutum í steypumót
Mælt er með því að námsmat í áfanganum byggi fyrst og fremst á verklegri vinnu nemenda (u.þ.b. 70%) en einnig á könnun á þeirri fagþekkingu sem þeir hafa aflað sér í áfanganum (30%). Síðarnefnda þáttinn er æskilegt að meta með verkefnum en einnig er hægt að leggja fyrir skyndipróf eða lokapróf.