teikningalestur og teikningar bygginga og mannvirkja
Samþykkt af skóla
3
5
FB
Nemendur fá þjálfun í lestri og gerð teikninga með áherslu á þakvirki, tréstiga og
verklýsinga. Fjallað er um burðarvirki þaka og frágang þeirra m.t.t. aðalsperra, hornsperra,
skammsperra og sperrusnið ásamt þakkvistum og tengingu þeirra við sperrur.
Þá er unnið með teikningar af tréstigum og útfærslur á kjálkum, þrepum, handriðum og
handriðslistum. Unnið er út frá stigareglum samkvæmt reglugerð.
Áfanginn er ætlaður húsasmiðum og byggist á verkefnavinnu með leiðsögn kennara
TEIK2HH05 /TEIK2HS05
Æskilegt er að nemendur taki þennan áfanga á lokaönn námsins.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ákvæðum reglugerðar um undirstöður þakvirkis og tréstiga
ýmsum útfærslum burðavirkja í þaki ásamt útfærslum á tréstigum
helstu ákvæðum reglugerðar um brunavarnir
íslenskum stöðlum um þök og festingar í burðarvirki og tréstiga
helstu fagheitum í gerð þaka og tréstiga
teikniaðferðum og teiknireglum fyrir trévirki þaka og tréstiga
fjallað um notkun algengustu teikniforrita í tölvu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa teikningar og verklýsingar
að útfæra sperrutekningar og gera sperrusnið og finna raunlengdir sperra
útfæra teikningar á stigum m.t.t. þrepa og kjálka með og án handriða
gera áætlanir um efnisnotkun og útreikninga
vinna eftir teikningum og verklýsingum
gera vinnuteikningar
vinna og hugsa sjálfstætt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa og vinna með teikningar af þökum og tréstigum
lesa og skilja merkingar og verklýsingar á teikningum
gera efnislista og einfalda kostnaðarútreikninga á grundvelli teikninga
Mælt er með því að námsmat byggi á verkefnavinnu, skyndiprófum og lokaprófi.