Í áfanganum er unnið með helstu grunnhugtök í lífeðlisfræði. Fjallað er um helstu viðfangsefni líffræðinnar, farið yfir grunnhugtök og lögð áhersla á líffræðilega ferla. Helstu efnisþættir sem tengjast uppbyggingu lífverunnar og hvernig mismunandi líkamskerfi virka. Uppbygging grunneiningar lífvera skoðuð og ferlar sem hafa áhrif á starfsemi hennar eftir því hvers eðlis hún er.
Nemendur beita sjálfstæði í vinnubrögðum og undirbúa sig undir frekara nám í líffræði og skyldum greinum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnhugtökum líffræðinnar.
líffræðilegum ferlum og helstu flokkum efna í lífverum.
byggingu og starfsemi frumna og vefjagerðar.
vökvakerfi líkamans.
boðflutningi í lífverum.
taugakerfinu og hlutverki þess.
verklegum aðferðum í fræðigreininni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa líffræðilegar upplýsingar úr máli og myndum.
túlka upplýsingar tengdu efninu og miðla því áfram.
rekja og útskýra flókin lífeðlisfræðileg ferli.
sinna verklegum aðferðum í fræðigreininni.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja undirstöðuþekkingu í líffræði við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar.
sjá orsakasamhengi í starfsemi líkamans.
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og meta eigin námsframvindu.
vinna sjálfstætt og í hóp til þess að auka skilning á fyrirbærum og ferlum í lífeðlisfræði.
• vinna á ábyrgan hátt í rannsóknastofu og gera skil á niðurstöðum úr slíkri vinnu