Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1512228567.66

    Starfsnám 1 - skóli - sérnámsbraut
    STAS1GR03
    3
    Starfsnám í skóla
    Grunnur
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Í áfanganum eru nemendur undirbúnir undir atvinnuþátttöku. Þeir kynnast fyrirtækjum og stofnunum í nærsamfélaginu með tilliti til atvinnuþátttöku. Þeim verður gerð grein fyrir helstu reglum sem gilda á vinnustöðum, réttindum og skyldum launþega og mikilvægi góðra samskipta. Námið fer fram á fjölbreyttan hátt, t.d. með ýmis konar verkefnavinnu, umræðum, vettvangsferðum og gestafyrirlestrum m.a. frá fulltrúum atvinnulífsins.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • atvinnutækifærum í nærsamfélaginu
    • fjölbreyttum vinnustöðum
    • mismunandi kröfum sem gerðar eru til starfsmanna í ólíkum störfum
    • styrkleikum sínum og mikilvægi góðra samskipta
    • réttindum og skyldum launþega
    • helstu atriðum sem taka þarf tillit til við starfsval
    • reglum, öryggi og hollustu á vinnustöðum
    • hættum í starfsumhverfinu
    • mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn
    • hvaða skilyrði þurfi að uppfylla til að öðlast réttindi í þeirri atvinnugrein sem hann hefur áhuga á
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tengja viðeigandi starfsheiti við vinnustaði
    • sækja sér upplýsingar um áhugaverð starfsheiti
    • fylgja fyrirmælum
    • gera sér grein fyrir mikilvægi hreinlætis á vinnustöðum
    • eiga samskipti við fólk með mismunandi skoðanir
    • vega og meta aðstæður á vinnustað með tilliti til öryggismála
    • meta möguleika sína varðandi nám og atvinnu
    • velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • eiga góð samskipti á vinnustöðum og virða mismunandi skoðanir
    • geta fylgt reglum sem gilda á vinnustöðum
    • gera sér grein fyrir mismunandi atvinnugreinum
    • meta þau atriði sem taka ber tillit til við starfsval
    • gera sér grein fyrir réttindum sínum og skyldum á vinnumarkaði
    • gera sér grein fyrir áhugaverðum atvinnumöguleikum
    • átta sig á mismunandi kröfum og/eða menntun að baki starfsheita
    • velja sér starf við hæfi
    Í áfanganum er viðhaft fjölbreytt námsmat sem felst í mati á verkefnavinnu, umræðum, virkni í tímum og mætingu.