Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1512229414.38

    Starfsnám 2 - vettvangur - sérnámsbraut
    STVS1SV03
    4
    Starfsþjálfun á vinnustað
    Starf á vinnumarkaði
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Starfsnámið fer fram innan veggja vinnustaðar sem nemandinn hefur valið í samráði við starfsfólk sérnámsbrautar. Við starfið fær nemandinn þann stuðning sem hann þarf á að halda en unnið er að því að styrkja hann í sjálfstæðum vinnubrögðum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Fjölbreyttum vinnustöðum.
    • Fjölbreyttum starfsheitum.
    • Mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Fylgja öryggisreglum á vinnustað.
    • Velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum.
    • Mæta til vinnu á réttum tíma.
    • Fylgja fyrirmælum.
    • Fylgja hreinlætisreglum á vinnustað.
    • Fylgja samskiptareglum á vinnustað.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Tilheyra starfsmannahópi.
    • Taka þátt í atvinnulífinu.
    • Hafa yfirsýn yfir mismunandi störf og starfsvettvang.
    • Þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem felst í þeim.