Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Búið til:
Thu, 14 Dec 2017 11:18:47 GMT
Titill
Hönnun í Inkscape, leiserskeri og vínilskeri
Viðfangsefni
Inkscape, leiser- og vínylskeri
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla
Lýsing
Nemendur kynnast forritinu Inkscape og notkun þess við stafræna hönnun. Samhliða því læra nemendur grunnatriði í notkun leiserskera og vínylskera. Áhersla er lögð á eigin hönnun sem og virðingu fyrir hugverka- og höfundarétti. Þá er einnig lögð áhersla á að nemendur læri að fylgja hugmynd til framkvæmdar og að þeir öðlist aukinn sköpunarkjark.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnatriðum í forritinu Inkscape
notkun vínylskera og hitapressu
grunnatriðum leiserskera
hugmyndavinnu, hugverkarétti og höfundarétti
hugmyndafræði FabLab, alþjóðlegrar stafrænnar smiðju
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota stafrænan tækjabúnað við hönnun
vinna skissu að frumgerð og hanna í tvívíddarforriti
útbúa rafræn skjöl fyrir tæki í leiser- og vínylskera
sjá skapandi möguleika á mistökum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útfæra hugmyndir sínar í tvívíddarteikniforriti
nota vínyl- og leiserskera
þróa hugmyndir sjálfstætt og undir leiðsögn
fylgja hugmynd til framkvæmdar
efla sköpunarkraft sinn
Námsmat
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.