Um er að ræða áfanga þar sem nemendur fá leiðsögn og tækifæri til að skrifa ýmsar gerðir ritsmíða er ekki falla undir hefðbundin akademísk skrif (t.d. heimildaritgerðir). Áhersla verður lögð á ritsmíðar á borð við sögur, smásögur og blaðagreinar eða aðrar ritsmíðar. Nemendur verða þjálfaðir í sögugerð og ritun eigin texta og áhersla lögð á að þeir skapi sér persónulegan tjáningarstíl, finni eigin rödd og aðferð til að miðla efni og upplýsingum á lipurlega rituðu máli.
Íslenska á þriðja þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu formgerðum ritsmíða
gæðum ritaðs og talaðs máls
helstu hugtökum er varða myndmál og stíl
sjónarhorni, frásagnaaðferðum og persónusköpun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina helstu frásagnaraðferðir og formgerðir ritsmíða
skrifa skýran texta
byggja ritsmíðar sínar upp á skipulegan hátt
skapa sér persónulegan stíl og rödd í skrifum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja form ritsmíða sem hentar hverju sinni
skrifa texta sem kemur hugsun höfundar skýrt á framfæri
rýna í eigin skrif og annarra
nýta sögugerð í miðlun eigin hugmynda
nýta sér aðferðir ritlistar til sköpunar
Símat. Öll vinna í áfanganum gildir til einkunnar.