Áfanginn felst í því að nemendur mynda hópa og stofna sitt eigið fyrirtæki. Vinna nemenda felst í því að hanna vöru eða þjónustu sem fyrirtækið framleiðir, markaðssetur og selur. Við rekstur fyrirtækjanna nota nemendur þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa hlotið í öðrum áföngum sínum svo sem viðskiptagreinum og list- og hönnunargreinum. Unnið er með hugtakið frumkvöðull og hvað í því felst. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og ábyrgð þeirra á eigin námi.
Grunnþekking í viðskiptagreinum, stafrænni hönnun og listgreinum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum í fyrirtækjarekstri
gerð viðskiptaáætlana
gerð einfaldra rekstrarreikninga
gerð einfaldra efnahagsreikninga
hugtökunum frumkvöðull og nýsköpun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka ákvarðanir
greina þarfir fyrir vöru og þjónustu
gera auglýsinga- og kynningaráætlanir
fjármagna eigin rekstur
fylgja hugmynd til framkvæmdar í samvinnu við aðra
hanna skissu/prótótýpu af vöru
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stofna og reka lítið fyrirtæki
stýra verkefnum
vinna saman í hóp og meta vinnu hvers annars
gera viðskiptaáætlun
undirbúa og framkvæma krefjandi verkefni
fara í gegnum framleiðsluferli vöru eða þjónustu
markaðsetja og selja afurðir sínar
greina tækifæri í umhverfinu
Áfanginn er símatsáfangi þar sem unnið er að hönnun vörunnar og rekstri fyrirtækisins alla önnina.