Í áfanganum verður unnið með fjölbreyttan hugbúnað og veflausnir sem tengjast ýmissi hönnun m.a. myndvinnslu í Photoshop, Illustrator og Inndesign, stafrænni miðlun efnis á fjölbreyttan hátt. Áfanginn er verkefnaáfangi þar sem lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, þjálfun í miðlun og framsetningu eigin efnis og verða efnistök af ýmsum toga.
Engar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stafrænni miðlun
forritunum Photoshop, Illustrator og Inndesign
myndvinnslu
möguleikum hönnunar með stafrænum miðlun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með myndir og skila þeim frá sér á stafrænu formi
nýta sér forrit á netinu til að skila frá sér hugmyndum á stafrænu formi
fylgja hugmynd til framkvæmdar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
breyta, sameina og útbúa myndir á stafrænu formi og til prentunar
útfæra eigin hugmyndir í myndvinnsluforritum
nýta sér umhverfi stafrænnar hönnunar
vinna sjálfstætt og með leiðsögn á skapandi hátt
Áfanginn er símatsáfangi þar sem nemendur vinna að fjölbreyttum verkefnum yfir önnina.