Farið verður yfir: Breytur,jöfnur,brotajöfnur, jöfnuhneppi. Liðun, þáttun, samlagning og stytting algebrubrota, veldi og rætur. Rúmfræði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og 1. og 2. stigs jöfnum og jöfnuhneppum.
rúmfræði.
liðun og þáttun.Samlagningu og styttingu algebrubrota.
veldum og rótum og þeim reikniaðgerðum sem þeim fylgja.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leysa 1. og 2. stigs jöfnur
leysa rúmfræðileg viðfangsefni
leysa verkefni sem innihalda veldi og rætur.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega með viðeigandi hætti
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s.s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
skilja merkingu og tengsl hugtaka sem notuð eru í útreikningum.
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við gæðahandbók.