Nemandi öðlist þekkingu á vali á rafbúnaði og geti sett og tengt húsveitur allt að 125 A. Nemandi geti með mælitækjum fundið bilanir í húsveitum. Hann læri að framfylgja kröfum viðskiptavina og geti sýnt leikni í samskiptum við þá. Nemandi geti veitt viðskiptavinum nauðsynlega ráðgjöf um val og staðsetningu rafbúnaðar.
STAÞ2GA20
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vali á búnaði í töfluskáp í húsveitur fyrir allt að 125 A
röðun varnaráðstafana í húsveitum
vali á stærð varbúnaðar og vírsverleka út frá straumálagi
gildi varnaráðstafana er varðar snerti- og brunahættu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja og setja upp búnað með fagmannlegum hætti
tjá sig um fagleg viðfangsefni
sýna samstarfsvilja og hjálpsemi á vinnustað
setja sig inn í aðstæður á hverjum stað og hvernig best sé að standa að verki
beita mælitækjum við bilanaleit á raflögnum og rafbúnaði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja búnað og töfluskáp í húsveitum fyrir allt að 125 A
geta gert sér grein fyrir heppilegri staðsetningu rafdreifiskápa að teknu tilliti til bestu lagnaleiða
ákvarða röðun búnaðar í aðaltöflu
gera sér grein fyrir röð varnarráðstafana í húsveitum
velja vírsverleika lagna út frá álagi
velja rétta stærð varbúnaðar
sjá gildi varnarráðstafana er varða snerti- og brunahættu