Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1515158104.7

    Tvinntölur og deildarjöfnur
    STÆR3TD05
    79
    stærðfræði
    deildajöfnur, tvinntölur
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum eru ýmis atriði eldra námsefnis tekin notuð við lausnir á verkefnum. Auk þess er bætt við ýmsu nýju efni og má þar nefna tvinntölur, fleiri gerðir deildajafna og frekari hagnýtingu heildareiknings.
    STÆR3HE05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tvinntölum
    • deildajöfnum af fyrsta og öðru stigi
    • flóknari heildunar- og deildunarverkefni
    • arkarföllum
    • rúmmáli og yfirborðsflatarmáli snúða
    • bogalengd ferla
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með tvinntölur
    • leysa flóknari heildunar og deildunar verkefni
    • finna rúmmál og yfirborðs flatarmál snúða
    • beita hjálpartækjum og forritum við lausn stærðfræðilegra viðfangsefna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • takast af öryggi á við stærðfræðileg verkefni
    • lesa stærðfræðitexta með skilningi
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og velja aðferð við hæfi
    • hagnýtt sér stærðfræðilega þekkingu sína til ákvarðanatöku í sérhæfðum verkefnum
    • fylgja og skilja röksemdafærslur í mæltu máli og í texta og gera sér grein fyrir notkun mótdæma til að afsanna fullyrðingar
    Leiðsagnarmat