Nemendur lesa norræna goðafræði og kynnast hugmyndaheimi norrænna manna til forna. Þeir vinna ýmis skapandi verkefni úr goðafræðinni þar sem þeir nýta upplýsingatækni við flutning og frágang verkefna.
Nemendur kynnast fornum kveðskap og vinna verkefni sem miða að því að auka skilning þeirra á fornu máli og samfélagi. Auk þess leitast nemendur við að setja miðaldabókmenntir í samhengi við sinn eigin samtíma og meta merkingu hans fyrir nútímann.
Nemendur vinna bæði munnleg og skrifleg verkefni, túlka textana og bera saman við eigin reynslu og hugmyndaheim. Þeir kynnast efni á sviði lista og margmiðlunar sem hæfir áfanganum, svo og efni á Netinu.
Nemendur fá þjálfun í notkun heimilda.
ÍSLE2RM06
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi tegundum bókmennta og norrænni goðafræði
helstu hugtökum í ritgerðasmíð
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
rita texta þar sem nemandinn beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri á greinargóðan hátt
flytja af nokkru öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknu málefni
lesa bókmenntaverka frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
vinna á skapandi hátt verkefni í tengslum við námsefnið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun
beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
tengja íslenskuna við fortíð og framtíð
tengja íslenska fornmenningu við nútímamenningu
skilja eðli og tilgang goðsagna í fornum samfélögum
útskýra eðli og þróun tungumála
Skrifleg loka- og skyndipróf, ritunarverkefni og ýmis hópverkefni.