Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1516804592.64

    Inngangur að fiskeldi
    FISK1IF06
    1
    Fiskeldi
    Inngangur að fiskeldi
    Samþykkt af skóla
    1
    6
    Áfanginn er inngangsáfangi að fiskeldi, bæði í sjó og á landi. Nemendur fá innsýn í mismunandi eldisaðferðir, fóðrun eldisfisks, umhirðu og aðbúnað. Námið er bæði bóklegt og verklegt en nemendur munu heimsækja eldisstöðvar og fá kynningar á helstu þáttum fiskeldis.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þróun fiskeldis
    • líffræðilegum forsendum fiskeldis
    • helstu sjúkdómum í íslensku fiskeldi
    • daglegri vinnu í fiskeldi
    • helstu aðferðum sem notaðar eru í fiskeldi á Íslandi
    • mikilvægi gagnrýninnar hugsunar
    • lögum og reglum sem gilda um fiskeldi á Íslandi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með öðrum
    • afla sér þekkingar á lögum og reglum er varða fiskeldi á Íslandi
    • þekkja og greina mismundani aðferðir í fiskeldi
    • tileinka sér vinnubrögð í fiskeldi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • miðla reynslu sinni og þekkingu í ræðu og riti
    • beita gagnrýninni hugsun
    • öðlast innsýn í fiskeldi á Íslandi
    • greina helstu sjúkdóma sem geta komið upp í fiskeldi á Íslandi
    Námsmat er í formi leiðsagnarmats