Í áfanganum er fjallað um ólíkar aðferðir við að fjarlægja og eyða hárum. Nemendur læra um uppbyggingu hárs og helstu aðferðir við notkun vax við að fjarlægja hár. Lögð er áhersla á að fá innsýn í og bera saman ólíkar aðferðir við háreyðingu. Nemendur öðlast verklega þjálfun við hárfjarlægingu með mismunandi gerðum af vaxi.
Samkvæmt námskrá í snyrtifræði
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu hárs og hárslíðurs
mismunandi hárgerðum og vaxtarhring hársins
áhrifum mismunandi aðferða við hárfjarlæginu/eyðingu s.s. raksturs, háreyðandi krema, plokkunar, vax, rafrænnar háreyðingar og ljósgeislameðferða
mismunandi vaxi sem er í boði á hverjum tíma, innihaldi þess, áhrifum á húðina og mismunandi verktækni við meðhöndlun hára
virkni og innihaldi efna sem eru notuð fyrir, eftir og á milli vaxmeðferða heimafyrir
frábendingum varðandi vaxmeðferð og varúðarráðstöfunum sem þarf að framfylgja í kjölfar meðferðar
mikilvægi hreinlætis og sótthreinsunar í og eftir vaxmeðferð
áhrifum bleikjandi efna á húð og hár
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp vinnuaðstöðu fyrir vaxmeðferð
undirbúa húðsvæði fyrir og eftir meðferð með vaxi
nota mismunandi tækni og ólík vaxefni til að fjarlægja hár
fjarlægja hár með rúlluvaxi, pottvaxi með og án strimla
ráðleggja um meðhöndlun húðar eftir vaxmeðferð
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúa verkþætti og hafa skilning á mikilvægi vandaðra vinnubragða og fagmannlegrar framkomu
taka á móti einstaklingi, þarfagreina húð og hárvöxt og velja viðeigandi vaxmeðferð
fjarlægja hár á árangursríkan hátt með tilliti til húðsvæðis og velja viðeigandi efni fyrir og eftir meðferð
sýna fagmannleg vinnubrögð og viðhafa viðeigandi sótthreinsun og hreinlæti í meðferð
vera háttvís í framkomu og viðhafa persónulegt hreinlæti
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
Símat sem samanstendur af verkefnavinnu, skyndiprófum, frammistöðu í kennslustundum) og verklegu lokamati.