Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1519475463.99

    Starfsþjálfun - málm- og véltæknigreinar
    STMV3ÞR25
    6
    Starfsþjálfun - málm- og véltæknigreinar
    Þriðji hluti
    Samþykkt af skóla
    3
    25
    Nám á vinnustað er skilgreindur hluti af námi á málm- og véltæknibraut. Starfsþjálfun á vinnustað er ætlað að þjálfa frekar hæfni nemenda á þeim sviðum sem nám þeirra á brautinni nær til. Á vinnustað fá þeir tækifæri til að takast á við raunveruleg verkefni við þær aðstæður sem fyrir hendi eru hverju sinni. Nemendur kynnast af eigin raun þeirri menningu sem fyrir hendi er í íslenskum fyrirtækjum og eru beinir þátttakendur í henni. Gert er ráð fyrir að hverjum nema fylgi ferilbók þar sem grein er gerð fyrir þjálfun hans. Þeir verkþættir sem nemandi framkvæmir eru tíundaðir, mat lagt á framgöngu hans, verktækni, vinnuhraða og hæfni í viðkomandi iðngrein. Bera nemandi og atvinnurekandi eða fulltrúi hans sameiginlega ábyrgð á skráningu í ferilbók.

    Þessi áfangi er sá þriðji af þremur. Nemendur geta að hluta til lokið honum samhliða námi við skóla.
    Nemandi þarf að hafa lokið námi á málm- og véltæknibraut. Hafa ber samráð við kennslustjóra vegna forkrafna fyrir vinnustaðanám.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim efnum sem unnið er með í málmiðnaði.
    • þeim tækjum sem notuð eru við vinnu í málm- og véltæknigreinum.
    • meðferð spilliefna og úrgangs.
    • framleiðsluferli algengra smíðamálma, smíðahæfni, merkingum og efnisstöðlum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla málma, vélar og vélarhluta.
    • nota helstu handverkfæri sem tengjast viðkomandi iðngrein.
    • vinna við hand- og tölvustýrð tæki sem notuð eru á verkstæðum.
    • sjóða málma og velja suðutækni og -aðferð við hæfi.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa teikningar, málsetja, draga upp útflatninga, gera efnislista, meta efnisþörf og kostnað.
    • vera ávallt meðvitaður um þær hættur sem fylgja störfum í málmiðnaði og þær öryggiskröfur sem gerðar eru á vinnusvæðum.
    • skipuleggja verkferla, setja upp verkþáttaröð og verkáætlun og vinna samkvæmt henni.
    • eiga í samskiptum við aðra iðnaðarmenn, hönnuði, tæknifólk og verkkaupa. Hann þekkir skipulag vinnustaðanáms og hlutverk þess í námi hans.
    Námsmat er gert samkvæmt ákvæðum ferilbókar viðkomandi iðngreinar.