AutoCad, málsetningaraðferðir, smíða- og lagnateikningar
Samþykkt af skóla
3
5
AV
Nemendur eiga að öðlast þjálfun í lestri og gerð fagteikninga samkvæmt gildandi stöðlum og reglum um véla- og málmsmíðateikningar. Nemendur fá undirstöðufærni í að lesa og vinna eftir teikningum á vinnustað. Þeir geta teiknað og útfært smíða- og lagnateikningar fyrir einstök verkefni. Teiknað samkvæmt stöðlum sem notaðir eru við almennar véla- og smíðateikningar: Lærð er grunnvinna með hornréttar fallmyndir, mælikvarða, strikagerðir, smiðsmiðaðar reglur um málsetningu , snið og skástrikun, skrúfugang og samsetningaeiningar, hrýfismerki, málvik, og suðutákn. Meðhöndlun teikninga, merkingar og vistun. Grundvallarreglur um gerð útflatningsteikninga. Unnið er í tölvum og grunnþekking þjálfuð í AutoCad.
GRUNÚF04, SMÍÐ2NH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
lestri og gerð fagteikninga samkvæmt gildandi stöðlum og reglum um véla- og málmsmíðateikningar
gerð teikninga og útfærslu smíða- og lagnateikninga fyrir einstök verkefni
gerð teikninga samkvæmt stöðlum sem notaðir eru við almennar véla- og smíðateikningar
grunnvinnu með hornréttar fallmyndir, mælikvarða, strikagerðir, smiðsmiðaðar reglur um málsetningu, snið og skástrikun, skrúfugang og samsetningaeiningar, hrýfismerki, málvik, og suðutákn
meðhöndlun teikninga, merkingar og vistun
grundvallarreglum um gerð útflatningsteikninga
AutoCad og notkun þess
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa og teikna almennar teikningar sem gerðar eru eftir gildandi stöðlum
teikna stöðluð form fyrir staðlaða íhluti (legur, pakkningar, tannhjól o.s.frv.)
teikna útflatninga af nokkrum þrívíðum formum, m.a. Breytistykkjum úr sívölum í rétthyrnt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja stærð teiknipappírs, staðsetja teikningu, ákvarða hæfilegan mælikvarða og uppsetningu
setja inn nauðsynleg snið og málsetja teikningu svo hún sé nothæf til að smíða eftir
nýta upplýsingar frá framleiðendum til að teikna stöðluð form fyrir staðlaða íhluti (legur, pakkningar, tannhjól o.s.frv.)
nýta teikningar til að gera efnis- og tækjalista
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.