Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1519638626.19

    Iðnteikning - CAD/CAM teikningar, ferlar, aðgerðir
    IÐNT3CN04
    6
    Iðnteikning málmiðna
    CAD/CAM teikningar
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    AV
    Nemendur kynnast aðferðum sem beitt er til að smíða hluti samkvæmt teikningu í tölvustýrðri iðnaðarvél. Þeir kynnast og verða færir um að beita ISO kóða og G kóða. Teikniforrit til að búa til vinnslustykki er kynnt (CAD - Computer Aided Design) og sömuleiðis vélaforrit til að forrita ferla og aðgerðir til vinnslu smíðahluta (CAM – Computer Aided Manufacturing).
    IÐNT3AC05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grundvallarhugtökum og virkni forrita tölvustýrðra iðnaðarvéla.
    • mælieiningum í teikniforritum.
    • notkunarmöguleikum CAD-CAM tækni.
    • hvernig verkfæri eru valin.
    • hlutverkum og virkni x, y og z ása.
    • uppbyggingu og virkni tækjanna.
    • teikningartáknum þeirra íhluta sem um er fjallað.
    • öryggisatriðum og öryggisstöðlum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með teikningar og undirbúa fyrir vinnslu í tölvustýrðum iðnvélum.
    • áætla efnismagn.
    • skipuleggja og velja verkfæri fyrir mismunandi CNC-skipanir.
    • leysa verkefni fyrir þriggja ása CNC-stýrða rennibekki og fræsivélar.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita CAD og CAM forritum á öruggan og árangursríkan hátt.
    • afla upplýsinga og gagna um vinnslu og skipulag verka fyrir CNC-stýrðar vélar.
    • mæla upp hlut, teikna í Inventor og forrita í CAM.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.