Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1520951704.57

    Íþróttir - badminton
    ÍÞRÓ2BA02
    20
    íþróttir
    badminton
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Áfanginn er verklegur íþróttaáfangi með badmintonþema. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum og spili auk þess sem lögð verður áhersla á grunnþjálfun, styrk og liðleika.
    ÍÞRÓ2ÞH03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • meginleikreglum badmintons
    • grunnatriðum í leikfræði íþróttagreinarinnar, einliða- og tvíliðaleiks
    • Algengum aðferðum við upphitun fyrir badminton
    • Fjölbreyttum aðferðum til að þjálfa þrekþætti í badmintoni
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • grunntækni og leikfræði í badmintoni
    • skipuleggja upphitun og æfingatíma í badmintoni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Viðhalda og bæta líkamlega heilsu með badmintoniðkun
    • Leysa af hendi verkefni sem snúa að skipulagningu eigin þjálfunar
    • Taka þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til íþrótta, líkams og heilsuræktar
    • Glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams og heilsurækt