Nemendum er kynnt líffræði fiska í megindráttum og umhverfisþættir sem hafa áhrif á þá í eldi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Líffræði fiska frá klaki til fullvaxta fisks
Tengslum umhverfis í eldi og líffræði fiska.
Áhrifum umhverfisþátta á afkomu fiska í eldi.
Mun á tegundum fiska í eldi og viðbrögðum við eldisumhverfi.
Öllum umhverfisþáttum er varða vöxt og viðgang fisks í eldi. Hugtakinu umhverfisvöktun („Vöktun merkir kerfisbundna og síendurtekna skráningu einstakra breytilegra þátta í umhverfinu“.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lýsa megindráttum í líffræði mismunandi eldistegunda og viðbrögðum þeirra við umhverfisþáttum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Leggja mat á þá þætti í umhverfi og aðbúnaði sem hafa jákvæð áhrif á vöxt og viðgang fisks í eldi.
Leggja mat á þá þætti í umhverfi og aðbúnaði sem hafa jákvæð áhrif á vöxt og viðgang fisks í eldi.
Greina mikilvægi umhverfisvöktunar í starfsemi fyrirtækisins og áhrifum þess á umhverfið.