Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1521124141.37

    Íþróttir - blak
    ÍÞRÓ2BL02
    19
    íþróttir
    blak
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Þessi áfangi er verklegur íþróttaáfangi með blakþema. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum og blakspili auk þess sem lögð verður áhersla á grunnþjálfun, styrk og liðleika.
    ÍÞRÓ2ÞL03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu blakreglum
    • algengum aðferðum við upphitun fyrir blak
    • fjölbreyttum aðferðum til að þjálfa þrekþætti í blaki
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota blak sér til ánægju og heilsueflingar
    • skipuleggja upphitun og æfingatíma með blak í huga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Viðhalda og bæta líkamlega heilsu með blakiðkun
    • Leysa af hendi verkefni sem snúa að skipulagningu eigin þjálfunar
    • Taka þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til íþrótta, líkams og heilsuræktar
    • Glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams og heilsurækt