Áfanginn er verklegur. Nemendur læra jógastöður, slökunaraðferðir, hugleiðslutækni og öndunaræfingar og jafnframt læra þeir um hvaða áhrif jóga hefur á heilsu manna. Einnig er kynnt sú heimspeki sem jóga byggir á, þær lífsreglur (yama og niyama) sem jóga felur í sér.
ÍÞRÓ2ÞL03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir vellíðan
hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
mismunandi jógastöðum
mismunandi öndunaræfingum
þeim lífsreglum sem jóga byggir á
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum jógastöðum
beita mismunandi slökunaraðferðum
beita mismunandi öndunaræfingum
sýna aukna einbeitingu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
styrkja og liðka líkamann
viðhalda og/eða bæta líkamlega og andlega heilsu
lifa samkvæmt einhverjum af lífsreglum jóga
Námsmat byggist á fjölbreyttum verkefnum sem metin eru jafnt og þétt yfir önnina þar sem nemendur þurfa að meta eigin skilning, upplifun og framþróun. Engin skrifleg lokapróf eru haldin.