Áfanginn er að mestu leyti verklegur.
Í áfanganum eru tvær megin áherslur. Annars vegar að nemendur skipuleggi þjálfun sína sjálf og fái tækifæri og aðstöðu til að fara eftir sinni eigin áætlun. Hins vegar að nemendur fái innsýn í og tækifæri til að prófa mismunandi möguleika til líkamsræktar. Hluti áfangans er kenndur í Sundhöll Selfoss, líkamsræktarstöðvum og öðrum íþróttamannvirkjum á svæðinu.
ÍÞRÓ1ÞH03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvaða þættir það eru sem þarf að hafa í huga þegar þjálfun er skipulögð
hvaða möguleikar eru til líkamsræktar í nærumhverfinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fara eftir eigin tímaáætlun
fjölbreyttri þjálfun þols, styrks og liðleika
þjálfun, hreyfingu og virkni, sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja og framkvæma eigin þjálfun
geta tileinkað sér þá möguleika til hreyfingar sem í boði eru í nánasta umhverfi
Námsmat byggir á þeim verkefnum sem nemendur skila, auk þess sem mæting og virkni er metin í tímum. Ekki er skriflegt próf í áfanganum.