Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1521130158.74

    Íþróttir - þreksalur
    ÍÞRÓ2ÞR02
    23
    íþróttir
    Þreksalur
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Áfanginn er að mestu leyti verklegur og kennt er í þreksal.
    Meginviðfangsefni áfangans er styrktar- og þrekþjálfun í tækjasal. Nemendur vinna út frá sinni eigin æfingaáætlun undir handleiðslu kennara og þeim markmiðum sem þau setja sér varðandi styrktarþjálfun. Að áfanga loknum eiga nemendur að hafa öðlast þekkingu og reynslu til að útbúa eigin þjálfunaráætlun til að bæta líkamsbyggingu og viðhalda krafti, þoli og liðleika.
    ÍÞRÓ2ÞL03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - hvernig styrktarþjálfunaráætlun er uppbyggð
      - mismunandi áherslum í styrktarþjálfun, hvort unnið er með hámarksstyrk eða vöðvaþol
      - mismumandi æfingum fyrir mismunandi vöðvahópa
      - að búa til nákvæmar og rétt uppbyggðar tímaáætlanir
      - hinum ýmsu hugtökum sem koma fyrir við skipulagningu þjálfunar eins og upphitun, aðalhluti, niðurlag og markmið
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - skipuleggja eigin þjálfun og búa til nákvæmar tímaáætlanir
      - fara eftir eigin tímaáætlun
      - að nota fjölbreyttar æfingar fyrir mismunandi vöðvahópa
      - þjálfun, hreyfingu og virkni, sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - skipuleggja og framkvæma eigin þjálfun
      - tileinka sér þá möguleika til hreyfingar sem eru í boði í nánasta umhverfi
      - taka þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til íþrótta, líkams- og heilsuræktar
      - tileinka sér meðvitað hreyfingu sem heilsuávinning til framtíðar
    Nemendur skila verkefnum, auk þess sem mæting og virkni er metin í tímum. Ekki er skriflegt próf.