Áfanginn felur í sér starfsþjálfun á námssamningi þar sem nemandi beitir þeirri þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í náminu til þessa. Kröfur í starfsþjálfun aukast stig af stigi. Að loknu námi í skóla, starfsþjálfun og fullnægjandi útfylltri ferilbók er neminn tilbúinn í sveinspróf.
Á 1. þrepi er aðstoð mikil og gert ráð fyrir að nemandi vinni undir leiðbeinandi fyrirmælum meistara. Sjálfstæði nemanda eykst síðan eftir því sem á námið líður. Á 1. þrepi kynnist nemandi vinnustað og verksviðum fagsins, helstu öryggisatriðum og þeim efnum og áhöldum sem tilheyra faginu. Í lok áfangans er ætlast til að hann hafi færni til að hefja nám á 2. þrepi starfsþjálfunar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vinnustaðamenningu og verksviðum fagsins.
helstu öryggis- og umhverfisatriðum sem snerta fagið.
eiginleikum þeirra efna sem hann vinnur með innan fagsins.
áhöldum og tækjum sem tilheyra faginu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka tilsögn og fylgja hönnunargögnum.
vinna í samræmi við gildi og stefnu vinnustaðar.
vinna með hliðsjón af viðurkenndu verklagi.
vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna undir stjórn og sinna vel þeim verkefnum sem honum eru falin.
kynnast notkun og viðhaldi á áhöldum og tækjum.
beita sér rétt við vinnu.
sýna þjónustulund og góða umgengni og umhirðu á vinnustað.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum meistara í viðkomandi grein.