Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1521472117.9

    Starfsþjálfun vélvirkja 2
    STAÞ2MS20
    45
    Starfsþjálfun
    Starfsþjálfun málm- og véltæknigreina
    Samþykkt af skóla
    2
    20
    AV
    Áfanginn felur í sér starfsþjálfun á námssamningi þar sem nemandi beitir þeirri þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í náminu. Kröfur í starfsþjálfun aukast stig af stigi. Að loknu námi í skóla, starfsþjálfun og fullnægjandi útfylltri ferilbók er neminn tilbúinn í sveinspróf. Á 2. þrepi er dregið úr aðstoð en tilsögn meistara ætíð tiltæk. Sjálfstæði nemandans eykst síðan eftir því sem á námið líður. Á 2. þrepi þekkir nemandi vel til vinnustaðamenningar og verksviða fagsins. Hann öðlast aukna færni í að beita áhöldum og nota efni sem tilheyra faginu. Hann getur unnið með viðurkenndu verklagi samkvæmt öryggisreglum og fylgt hönnunargögnum með tilsögn.
    STAÞ1MS20
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu verksviðum fagsins.
    • helstu öryggis- og umhverfisatriðum sem snerta fagið.
    • helstu gæðakröfum sem snerta fagið.
    • eiginleikum og möguleikum þeirra efna sem hann vinnur með innan fagsins.
    • áhöldum og tækjum sem tilheyra faginu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fylgja hönnunargögnum með tilsögn.
    • vinna í samræmi við gildi og stefnu vinnustaðarins.
    • vinna með hliðsjón af gæðakröfum og viðurkenndu verklagi.
    • vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.
    • beita fjölbreyttum aðferðum til að ná markmiðum í starfi.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita sjálfstæði í vinnubrögðum.
    • horfa á verk sitt gagnrýnum augum og bæta verklag með aðstoð meistara.
    • nota og sinna viðhaldi á áhöldum og tækjum.
    • beita sér rétt við vinnu.
    • sýna þjónustulund og góða umgengni og umhirðu á vinnustað.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum meistara í viðkomandi grein.