Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1521539114.68

    Fagorðaforði
    ENSK3FO05
    57
    enska
    Fagorðaforði og ferðamál
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Unnið með fagorðaforða þar sem nemendur byggja upp sinn eigin orðaforða tengt sérsviði hvers og eins. Fjölbreytt ritunarverkefni þar sem nemendur nota þann orðaforða sem þeir eru að byggja upp. Einnig er mikið unnið með munnlega færni þar sem nýr orðaforði er æfður.
    ENSK2OR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
    • hefðum sem eiga við um talað og ritað mál, t.d. mismunandi málsnið
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja vel sérhæfða texta sem hann þekkir
    • lesa, sér til ánægju eða upplýsingar, texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða og uppbyggingu eða myndmál og stílbrögð
    • nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum
    • beita ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem við á og mætir hæfniviðmiðum þrepsins
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni sem hann hefur þekkingu á
    • skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni, fræðilegs eða tæknilegs eðlis
    • geta lagt gagnrýnið mat á texta
    • hagnýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt
    • lýsa skýrt og greinilega flóknum hlutum eða ferlum á sviði sem hann þekkir vel
    • vinna efni úr ýmsum upplýsingaveitum og fella saman í eina heild samkvæmt þeim hefðum sem gilda um heimildavinnu
    • skrifa gagnorðan og skilmerkilegan texta sem tekur mið af því hver lesandinn er
    Símat – fjölbreytt námsmat.