Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1521632404.77

    Sjóréttur
    SJÓR2ÁS04(AV)
    3
    Sjóréttur
    ábyrgð og skyldur vélstjórnamanna
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    AV
    Nemendur kynnast lagaumhverfi sjávarútvegs og siglinga, þ.e. helstu lögum og reglum um siglingar og útgerð og þá sérstaklega það sem lýtur að hlutverki, ábyrgð og skyldum skipstjórnar- og vélstjórnarmanna. Fjallað er um meginatriði löggjafar og réttarheimilda um varnir gegn mengun sjávar auk þess sem vikið er að uppbyggingu alþjóðlegs og fjölþjóðlegs samstarfs á vettvangi SÞ (Sameinuðu þjóðanna), ESB (Evrópusambandsins) og EES (Evrópska efnahagssvæðisins). Nemendur skulu m.a. öðlast grunnþekkingu á helstu réttarreglum um siglingar og útgerð, á meginreglum vinnuréttar og skaðabótaréttar og á reglum um vátryggingar í skiparekstri. Sérstaklega er fjallað um lög og reglur, gerð og búnað, skráningu og eftirlit með skipum. Fjallað er um réttindi yfir skipum, réttindi og skyldur skipverja samkvæmt sjómannalögum, um skiprúmssamninga og um lögskráningu. Fjallað er um efni helstu alþjóðasamþykkta sem eru í gildi, um helstu tilskipanir og reglugerðir Evrópusambandsins á sviði siglinga svo og um íslenska löggjöf á þessu sviði, með áherslu á fiskveiðar og fiskiskip.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppbyggingu íslensks réttarkerfis og helstu lagareglum um siglingar og útgerð
    • valdheimildum stjórnvalda og réttarheimildum er varða siglingar og útgerð
    • réttarstöðu Íslands gagnvart ákvæðum EES-samningsins, stjórnskipan Evrópusambandsins og stofnanir þess, þ.m.t. EMSA
    • helstu ákvæðum laga um stjórn fiskveiða, veiða í fiskveiðilandhelginni og réttarreglum um ábyrgð skipstjóra við fiskveiðar innan og utan íslensku efnahagslögsögunnar
    • grundvallaratriðum vinnuréttar, skyldum og réttindum launþega, ábyrgð í starfi, sérreglum um sjómenn með áherslu á fiskimenn, réttindi og skyldur skipstjóra og áhafnar og löggjöf um áhafnir á íslenskum skipum, þ.m.t. um lögskráningu
    • lögum og reglum sem lúta að réttindum til starfa á skipum, um mönnun skipa og ákvæði laga um vinnu- og hvíldartíma sjómanna
    • lögum og reglum um umhverfisvernd og varnir gegn mengun frá skipum
    • ábyrgð og skyldum vegna annarra alþjóðasamþykkta sem varða öryggi skipa, skipverja, farþega og farms
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • kynna sér lög og reglur er lúta að starfsumhverfi hans
    • kynna sér alþjóðasamþykktir er lúta að skipum og siglingum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • túlka lög og reglur er lúta að sjómennsku og siglingum og fara eftir þeim
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.