Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1521809213.32

    Íþróttir - jóga 2
    ÍÞRÓ2JH02
    26
    íþróttir
    Yoga og hugleiðsla
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Áfanginn er verklegur. Nemendur læra fleiri jógastöður, slökunaraðferðir, hugleiðslutækni og öndunaræfingar. Einnig verður farið dýpra í þá heimspeki sem jóga byggir á og áhersla lögð á núvitund (mindfulness).
    ÍÞRÓ2JÓ02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi jógastöðum og öndunaræfingum
    • ólíkum tegundum af jóga
    • þeim lífsreglum sem jóga byggir á
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum jógastöðum
    • beita mismunandi slökunaraðferðum
    • beita mismunandi öndunaræfingum
    • sýna aukna einbeitingu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • styrkja og liðka líkamann
    • viðhalda og/eða bæta líkamlega og andlega heilsu
    • lifa samkvæmt einhverjum af lífsreglum jóga
    • vera til staðar í núinu
    Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina þar sem nemendur þurfa að meta eigin skilning, upplifun og framþróun. Engin skrifleg lokapróf.