Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1522073775.01

    Enska með áherslu á málfræði
    ENSK1MT05
    74
    enska
    málfræði, tjáning
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með grunnatriði enskrar málfræði og ritunar. Í áfanganum rifja nemendur upp þá færni sem þeir hafa þegar náð og þjálfa upp ný atriði.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Grunnþáttum enskrar réttritunar
    • Einfaldri ritun sem felur í sér stuttar setninga og stök orð
    • Að áherslur í framburði eru misjafnar hjá hverjum og einum
    • Mikilvægi þess að hafa ensku á valdi sínu bæði á atvinnumarkaði og í einkalífi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Setja sér raunhæf markmið og þekkja leiðir að þeim
    • Leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
    • Geta ritað stutt skilaboð á enskri tungu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Nýta sér enska málfræði í ræðu og/eða riti
    • Koma auga á styrkleika sína
    • Efla sjálfstraust sitt
    Námsmatið er einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.