Í áfanganum er lögð áhersla á að efla þrek og þol, byggja upp styrk, auka líkamsvitund og þjálfa jafnvægi. Með reglulegum markvissum æfingum sem fara aðallega fram í þreksal skólans sem fel í sér að ganga á bretti, hjóla, styrktar æfingar og teygjur. Gönguferðir úti þegar veður leyfir og sund 2x í viku á meðan sundlaugin er opin.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
notkun á þrektækjum
notkun á handlóðum og stöngum með rétta líkamsbeitingu
hvernig þoltæki eins og hlaupabretti virka
almennu hreinlæti
sundaðferðum og þrekþjálfun í sundi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota þrektæki
nota handlóð og stangir við þjálfun á eigin líkama
koma þoltækjum af stað og nýta sér þau í upphitun
fara í sturtu eftir leikfimi og sund
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta stundað líkamsrækt í þreksal á eiginn forsendum með eða án aðstoðarmanneskju
geta sundað sundferðir bæði til bæta líkamshreysti sína og til skemmtunar
skilji mikilvægi hreinlætis að lokinni líkamsrækt
Námsmat er fjölbreytt og byggir m.a. á leiðsagnarmati, virkni í kennslustundum og ástundun.