Í áfanganum er unnið með ýmsa grunnþætti íslenskunnar, svo sem lestur, lesskilning, ritun og tjáningu.
Í áfanganum er lögð áhersla á að kynna fyrir nemendum þau vinnubrögð sem viðhöfð eru í skólanum en námið fer mikið fram í gegnum tölvur. Unnið er að því að nemendur verði færir í alls kyns textavinnslu á tölvutæku formi og kynnist þeim möguleikum sem tölva og netið bjóða upp á. Nemendur lesa ýmsa texta sem birtast í miðlum á netinu og vinna með þá ásamt því að fá þjálfun í ritun og tjáningu.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim möguleikum sem tölva býður upp á til meðhöndlunar texta
mismunandi miðlum á netinu
ritun og framsetning texta í tölvutæku formi
mikilvægi tjáningar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meðferð texta á tölvutæku formi
að lesa mismunandi texta á netinu sér til gagns
ritun mismunandi texta við sitt hæfi
tjáningu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skila tölvuunnum verkefnum og senda rafrænt til kennara ...sem er metið með... skriflegum og munnlegum verkefnum
lesa ýmsa texta á netinu s.s. fréttir og fræðigreinar ...sem er metið með... skriflegum og munnlegum verkefnum
rita einfalda texta, sögur og ljóð ...sem er metið með... skriflegum verkefnum
tjá eigin skoðanir ...sem er metið með... þátttöku í samræðum í tímum
Námsmat er fjölbreytt og byggir m.a. á leiðsagnarmati, virkni í kennslustundum og ástundun.