Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1523105519.45

    Íslenska 8 - sérnámsbraut
    ÍSLS1MÁ02
    8
    íslenska á starfsbraut
    Málnotkun
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Unnið verður að því að efla alla þætti íslenskunnar, s.s málnotkun, málskilning, lestur, ritun og málfræði sem reynt er að tengja áhugasviði hvers nemanda. Megin áhersla verður á að viðhalda og byggja ofan þann grunn sem nemendur hafa þegar náð með þeim kennsluaðferðum sem hverjum og einum nemanda lætur best að nema við.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeirri tjáskiptaleið sem hentar honum
    • einfaldri málnotkun, málfræði og málskilningi
    • lestri og ritun texta sem nýtist í daglegu lífi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • taka þátt samræðum, sagt hvað honum býr í brjósti og tjáð skoðanir sínar
    • lesa og skilja texta og vinna verkefni tengd honum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér mælt og ritað mál í daglegu lífi
    • vera meðvitaður um sjálfmynd sína, styrkleika og veikleika
    • hafa jákvæð samskipti við annað fólk, bera virðingu fyrir skoðunum annarra, lífsgildum, mannréttinum, og jafnrétti
    • leita að og nýta sér ýmiss konar hjálpargögn
    Námsmat er fjölbreytt og byggir m.a. á leiðsagnarmati, virkni í kennslustundum og ástundun.