Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1523120547.53

    Lífsleikni 2 á starfsbraut
    LÍFS1GL02
    70
    lífsleikni
    Forvarnir, heilbrigði
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum er áhersla á andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði. Einnig samspil einstaklings, aðstæðna og umhverfis. Notast verður við atburði líðandi stundar sem umræðuefni og sögulegar staðreyndir. Megin áhersla verður á að nemendur viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem þeir búa nú þegar að.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hugtökunum, heilbrigði og velferð.
    • Mikilvægi þess að nýta hæfileika sína.
    • Mikilvægi þess að borða hollt og gott.
    • Mikilvægi hreyfingar og hvíldar.
    • Hugtökunum: Hollusta, hvíld, hreyfing, hreinlæti, hamingja, hugrekki og kynheilbrigði.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Skoða og meta eigið heilbrigði og eigin velferð.
    • Vinna með öðrum.
    • Taka tillit til annarra.
    • Sýna samkennd.
    • Taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Vera meðvitaður um styrkleika sína.
    • Að spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni.
    • Tileinka sér jákvætt hugarfar.
    • Auka eigið heilbrigði og velferð.
    Námsmat er fjölbreytt og byggir m.a. á leiðsagnarmati, virkni í kennslustundum og ástundun.