Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1523120621.71

    Lífsleikni 3 á starfsbraut
    LÍFS1HL02
    71
    lífsleikni
    Hugtakið jafnrétti
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum er áhersla á jafnréttishugtakið í þeim tilgangi að leitast við að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar og forréttinda. Hugtök sem koma fyrir eru til dæmis aldur, búseta, kyn, kynhneigð, menning, trúarbrögð, lífsskoðanir, menntun, minnihlutahópar og litarháttur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Jafnréttishugtakinu.
    • Að allir hafa hæfileika og þroskamöguleika.
    • Mismunandi samskiptareglum.
    • Fjölbreytileika.
    • Minnihlutahópum.
    • Mikilvægi þess að eiga möguleika á því að velja.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nýta sér gagnrýna hugsun.
    • Virða eigin skoðanir og annarra.
    • Átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum.
    • Taka þátt í umræðum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Skilja þá hugsun sem felst í hugtakinu lýðræði.
    • Spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni.
    • Átta sig á tengingu á milli réttinda og skyldna.
    • Skilja þá hugsun sem felst í hugtakinu mannréttindi.
    • Láta skoðanir sínar í ljós.
    Námsmat er fjölbreytt og byggir m.a. á leiðsagnarmati, virkni í kennslustundum og ástundun.