Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1523120694.61

    Lífsleikni 4 á starfsbraut
    LÍFS1IL02
    72
    lífsleikni
    Kynheilbrigði
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum er áhersla á kynfræðslu í þeim tilgangi að nemendur viti hvað felst í kynheilbrigði og að þeir öðlist jákvæðan skilning á kynlífi og öðlist hæfni til að viðhalda eigin kynheilbrigði. Stuðlað verður að því að nemendur læri að taka ábyrgar ákvarðanir á líðandi stundu og í framtíðinni.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Vexti og þroska líkamans.
    • Hugtökum um líkamshluta og kynlíf.
    • Að sjónarhorn allra er jafn mikilvægt.
    • Mikilvægi kynheilbrigðis.
    • Algengum kynsjúkdómum og getnaðarvörnum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Íhuga og kanna eigið viðhorf til kynlífs.
    • Tjá skoðanir sínar.
    • Þekkja eigin líkama.
    • Eiga viðeigandi samskipti, sem einkennast af virðingu, við einstaklinga af báðum kynjum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Taka ígrundaðar ákvarðanir varðandi kynheilbrigði sitt.
    • Spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni.
    • Auka sjálfstæði sitt og trú á sjálfum sér.
    • Láta skoðanir sínar í ljós.
    • Vera meðvitaður um að kynferðisleg tjáning getur verið mismunandi.
    Námsmat er fjölbreytt og byggir m.a. á leiðsagnarmati, virkni í kennslustundum og ástundun.