Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1523120858.02

    Lífsleikni 7 á starfsbraut
    LÍFS1KL02
    75
    lífsleikni
    Fjölbreyttar tómstundir
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum verða ýmsir flokkar tómstunda skoðaðar og kynntir. Fjallað verður um fjölbreytileika þeirra og hvernig hægt er að nota þær í þeim tilgangi að gefa lífinu enn meira gildi. Skoðaðar verða úti og inni tómstundir, tómstundir sem eru í skóla, í starfi, heima við og í lífinu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Að til eru fjölbreyttar tómstundir.
    • Að tómstundir geta verið ánægjulegar og hægt er að velja tómstundir við hæfi.
    • Að tómstundir geta verið einungis til afþreyingar en líka haft menntunarlegt gildi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Velja tómstund sem hentar honum.
    • Stunda samviskusamlega þær tómstundir sem valdar hafa verið.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Hafa yfirsýn yfir fjölbreyttar tómstundir.
    • Meta og velja tómstund með hliðsjón af áhugasviði og hæfni.
    • Skoða fordómalaust ný svið tómstunda.
    Námsmat er fjölbreytt og byggir m.a. á leiðsagnarmati, virkni í kennslustundum og ástundun.