Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur hafa þannig að þeir verði færir um að nýta kunnáttu sína við lausn stærðfræðilegra viðfangsefna daglegs lífs.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunn reikniaðgerðurm
meðferð peninga
meðferð vasareiknis
einföldum kaupum- og verðútreikningum
á að lesa á verðmiða og gera verðsamanburð
tíma/klukku
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meðferð peninga
meðferð vasareiknis
að lesa á verðmiða og gera verðsamanburð
nota klukku
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þroska tímaskyn sitt ...sem er metið með... umræðum og verkefnum
tileinki sér ábyrgð á eigin fjármálum og átti sig á að tekjur og gjöld verða að standast á ...sem er metið með... umræðum og verkefnum
þekkja nauðsyn og mikilvægi stundvísi í leik og starfi ...sem er metið með... umræðum og verkefnum
temji sér að skipuleggja innkaup, fjármál og tíma ...sem er metið með... umræðum og verkefnum
Námsmat er fjölbreytt og byggir m.a. á leiðsagnarmati, virkni í kennslustundum og ástundun.