Stærðfræðileg viðfangsefni í daglega lífinu leyst með skipulögðum vinnubrögðum og notkun allra mögulegra hjálpartækja, svo sem síma, tölva og reiknivéla. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Reikniaðgerðir (samlagning, frádráttur, margföldun og deiling) og röð aðgerða, prósentur, vextir. Unnið er með útreikninga og stærðfræðileg hugtök sem nýtast nemendum í daglegu lífi. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Undirstöðuatriðum í reikningsaðgerðum og forgangsröðun aðgerða
Mikilvægi stærðfræðinnar í daglegu lífi
Grunnatriðum í prósentureikningi
Myndritum og hnitakerfi
Flatarmáli og rúmmáli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nota vasareikni, tölvu og aðrar reiknivélar
Nota algeng stærðfræðitákn
Vinna með tölur á fjölbreyttan hátt
Beita prósentureikningi í einföldum dæmum
Búa til og lesa úr myndritum og hnitakerfi
Reikna flatarmál og rúmmál
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
Setja fram tölulegar upplýsingar og skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
Beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
Temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
Tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
Námsmat er fjölbreytt og byggir m.a. á leiðsagnarmati, virkni í kennslustundum og ástundun.