Í áfanganum er heilbrigðishugtakið skilgreint. Lögð er áhersla á hlutverk og sögulega þróun heilbrigðisfræði og áhrif hennar á nútíma heilbrigðismál. Fjallað er um helstu heilbrigðisvandamál í nútíma samfélagi og forvarnir gegn þeim. Áhersla er lögð á forvarnarstarf gegn sjúkdómum og slysum, áhættuþætti sem þeim tengjast og hvernig einstaklingar geta haft áhrif á eigið heilbrigði. Fjallað er um skipulag heilbrigðisþjónustunnar og helstu stofnanir, sem móta stefnu í forvörnum, heilsueflingu og heilbrigðisfræðslu. Einnig er fjallað um smitsjúkdómavarnir, kynsjúkdómavarnir, tóbaksvarnir, áfengis- og vímuefnavarnir, geðvernd, beinvernd og mæðra- og ungbarnavernd. Fjallað er um umhverfisheilbrigðisfræði og tengsl mengunar og sjúkdóma skoðuð ásamt helstu mengunarvörnum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
heilbrigðishugtakinu
sögulegri þróun heilbrigðisfræði og áhrifum á heilbrigðismál
helstu heilbrigðisvandamálum í nútíma samfélagi og forvörnum gegn þeim
uppbyggingu og skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi
aðferðum og aðgerðum sem stuðla að heilsueflingu og forvörnum sjúkdóma
ábyrgð einstaklingsins á eigin heilsu
helstu umhverfisþáttum sem ógnað geta heilbrigði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lýsa uppbyggingu og skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi
afla á fjölbreyttan hátt þekkingar um aðgerðir og aðferðir sem stuðla að slysavörnum, heilsueflingu og forvörnum sjúkdóma
sýna í verki að hann tekur ábyrgð á eigin heilsu
gera grein fyrir umhverfisþáttum sem geta ógnað heilbrigði manna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra heilbrigðishugtakið út frá mismunandi menningarheimum
greina samspil lífsstíls og heilsu
greina eigin lífsstíl og áhættuþætti tengda honum
álykta um áhrif heilbrigðisfræðinnar á þróun heilbrigðismála í nútímanum
miðla á skapandi hátt upplýsingum um helstu heilbrigðisvandamál og forvarnir þeirra
Námsmat byggist á áfangamarkmiðum. Þess skal gætt að námsmat taki til allra þátta námsins og meti þekkingu nemandans, skilning og færni auk framfara, vinnulags og hugkvæmni. Lokamat er í formi lokaprófs, lokaverkefnis eða símats.